Samstarfið
Eigendur sjálfbærniverkefnanna eru Alcoa, Landsvirkjun og Landsnet. Austurlandsverkefnið var sett á laggirnar árið 2004 og voru það Alcoa og Landsvirkjun sem komu að því með því að virkja fjölda hagsmunaaðila úr öllum áttum til samstarfs. Starfsemi Landsnets var þá enn hluti af Landsvirkjun, en hefur fulltrúi frá Landsneti verið virkur í samráðshóp verkefnisins frá því að Landsnet varð sjálfstæð stofnun. Í Norðurlandsverkefninu eru það fulltrúar Alcoa, Landsvirkjunar og Landsnets sem skipa eigendahóp verkefnisins. Að sama skapi hafa fjölmargir hagsmunaaðilar verið virkjaðir til samstarfs og hægt er að sjá hvaðan fulltrúar í samráðshóps og stýrihóp sjálfbærniverkefnanna koma.
