Sjálfbærnivísar í Austurlandsverkefninu
Samtals 45 vísar voru þróaðir í samvinnu við samráðshópinn og alls 78 mælikvarðar sem notaðir eru til að fylgjast með vísunum. Til að setja vísana í víðara samhengi eru þeir flokkaðir eftir því hvernig þeir tengjast hinum þremur meginstoðum sjálfbærrar þróunar, þ.e. fólk, umhverfi og efnahagur.
Alcoa og Landsvirkjun hafa skuldbundið sig til að fylgjast með þessum vísum, upplýsa um þróun þeirra og bregðast við ef þróunin kallar á aðgerðir. Fyrirtækin munu reglulega endurskoða vísana og breyta þeim í samráði við samráðshóp verkefnisins. Breytingar eru aðeins gerðar á vísum og mælikvörðum ef þörf er á í þeim tilgangi að tryggja notagildi við að mæla áhrif starfsemi fyrirtækjanna á sjálfbæra þróun á Austurlandi.
Til að tryggja gæði, gagnsæi og opið ákvörðunarferli í verkefninu var eftirfarandi verklagsregla um "breytingar á vísum og mælikvörðum" mótuð í samráði við samráðshóp verkefnisins. Smellið hér til að sjá verklagsreglu um breytingar.
Hlutverk ársfundar verkefnisins er einnig skilgreint í verklagsreglu til þess að tryggja upplýsingamiðlun, gæði og samráð í verkefninu. Smellið hér til að sjá verklagsreglu um ársfund.
