Þróun mælikvarða

Þróun mælikvarða

Fyrir hvern vísi þarf að skilgreina nákvæmlega hvað á að mæla. Skilgreining mælikvarða er afar mikilvæg til að tryggja að vísar spegli raunverulega þróun, samkvæmt stefnumiðum um sjálfbæra þróun.

Mælikvarðar eru skilgreindir eftir að vísar hafa verið valdir. Mælikvarðar þurfa að vera í stöðugri þróun og endurskoðun. Þó er farið varlega í allar breytingar þar sem breyting á mælikvarða takmarkar eða getur komið í veg fyrir samanburð.

Hér eru nokkur dæmi um tengsl milli vísa og mælikvarða:

Samfélagsvísir: Öryggi starfsfólks
Mælikvarði: Fjöldi tilkynntra vinnuslysa á ári

Umhverfisvísir: Flúor í gróðri
Mælikvarði:  Styrkur flúors í gróðri í völdum gróðurreitum, t.d. í ákveðinni fjarlægt frá álveri

Efnahagsvísir: Fjárhagur sveitarfélaga
Mælikvarði: Breytingar á útsvarstekjum í völdum sveitarfélögum.