Þróun vísa

Þróun vísa í þessum verkefnum

  • Thrihyrningur-islenska

 

Sú nálgun sem notuð er við þróun vísa í þessum verkefnum felur í sér þrjú skref.

  • Fyrsta skrefið er að fara yfir þau málefni sem samráðshópur tilgreinir sem þau mikilvægustu í tengslum við fyrirhugaðar framkvæmdir. Þríhyrningurinn hér til hliðar sýnir hversu samtengdir umhverfis-, efnahags- og samfélagsþættir eru. Hægt er að smella á þríhyrninginn til að fá stærri útgáfu.

  • Annað skrefið felur í sér að þróa tillögur að tölulegum vísum með því að ákveða hvaða aðferð sé árangursríkust til að fylgjast með hverju málefni fyrir sig. Sem dæmi má nefna að í Austurlandsverkefninu var talið að besta leiðin til að fylgjast með málefninu „áhrif á dýralíf“ væri að mæla fjölda þeirra dýra á svæðinu sem framkvæmdir myndu hugsanlega hafa áhrif á (t.d. hreindýr, heiðargæsir og aðra varpfugla) og voru þessar tegundir því valdar sem vísar fyrir þetta málefni.

  • Í þriðja skrefi eru ákveðin viðmið notuð til að meta tillögur að vísum (sjá mynd). Miðað er við að vísarnir uppfylli sem flest af eftirfarandi viðmiðum:

    • Viðeigandi – Vísar þurfa að vera viðeigandi og tengjast á einhvern hátt bæði fyrirhuguðum fram-kvæmdum og skilgreiningu á sjálfbærni.

    • Vísindalegur grunnur – Það þarf að vera hægt að finna mælikvarða fyrir vísa sem mæla ástand og þróun á skýran hátt.

    • Næmir fyrir breytingum – Vísar þurfa að vera næmir fyrir breytingum og endurspegla þannig raunverulegt ástand.
    • Sýna þróun – Vísar þurfa að vera þess eðlis að mögulegt sé að fylgjast með þróun sem hefur einhverja þýðingu hvað varðar stefnumið í sjálfbærniverkefninu.

    • Upplýsingar um grunnástand – Upplýsingar um grunnástand þurfa að vera aðgengilegar. Þær þurfa að sýna hvernig þróunin hefur verið í fortíðinni þannig að hægt sé að túlka framtíðarþróun í réttu samhengi.

 

Þeir vísar sem standast flest viðmið eru síðan valdir til að vinna með áfram.

Í Austurlandsverkefninu hafa hingað til eingöngu verið stuðst við 45 vísa sem samráðshópur verkefnisins valdi samkvæmt áðurnefndri aðferðafræði. Hinsvegar útilokar það ekki að við áframhaldandi þróun verkefnisins verði farið að styðjast við alþjóðlega sjálfbærnivísa.