Skip to content

LV-2017/033 - Heiðagæsarannsóknir á vatnasviði Kárahnjúkavirkjunar árið 2016

More info
Title LV-2017/033 - Heiðagæsarannsóknir á vatnasviði Kárahnjúkavirkjunar árið 2016
Subtitle LV-2017/033
Description Árið 2016 kannaði Náttúrustaofa Austurlands heiðagæsavarp á völdum svæðum fyrir Landsvirkjun sem er liður í vöktun fugla á vatnasviði Kárahnjúkavirkjunar. Í úttektinni voru vörpin í Hafrahvömmum, í Laugarvalladal og Sauðárdal auk varps á Vesturöræfum norðan Sauðár skoðuð. Tíðarfar og snjóalög settu mark sitt á varpið sem hófst óvenju seint og færri varppör reyndu fyrir sér sökum þess sem kom fram sem fækkun miðað við síðustu mælingar. Varpárangur var engu að síður ágætur. Að meðaltali voru 3,7 egg í hreiðri og 2,4 ungar fylgdu hverju pari. Tilraunir með flygildi í varprannsóknum lofuðu góðu sem stofan stefnir á að beita í ríkari mæli í framtíðinni. Veruleg aukning varð á fjölda ófleygra heiðagæsa á Snæfellsöræfum í júlí og og voru tæpar 10.000 heiðagæsir á Eyjabakkasvæðinu, þ.a. 710 ungar sem er það mesta sem hefur verið talið á svæðinu til þessa. Síðast voru taldar álíka margar heiðagæsir þar árið 2002. Hlutfall ársgamalla heiðagæsa á Eyjabakkasvæðinu var 29% og hefur fjöldi þeirra ekki verið meiri síðan mælingar hófust
File
Download file
Authors
Name Halldór Walter Stefánsson
Name Skarphéðinn G. Þórisson
Taxonomy
Category Fuglar
Year 2017
Publisher Landsvirkjun
Keywords Heiðagæs, vatnasvið, Kárahnjúkavirkjun