Skip to content

LV-2014/040 - Útbreiðsla og ástand seiða í Jökulsá á Dal og hliðarám hennar 2013

More info
Title LV-2014/040 - Útbreiðsla og ástand seiða í Jökulsá á Dal og hliðarám hennar 2013
Subtitle VMST/13048
Description

Gerð var rannsókn á þéttleika og ástandi seiða í Jöklu og hliðarám hennar. Um er að ræða framhald rannsókna sem hófust 2011 til að fylgjast með landnámi laxfiska í Jöklu í kjölfar breytinga vegna tilkomu Kárahnjúkavirkjunar og veitingu vatns til Lagarfljóts. Við það breyttust skilyrði í Jöklu verulega en hún er nú bergvatnsá utan þess tíma sem jökulvatn fellur á yfirfalli úr Hálslóni síðsumars. Náttúruleg laxaseiði fundust á neðri hluta Jöklu en sleppiseiði á efri svæðum árinnar. Þrif seiða virðast almennt góð
og vöxtur ekki minni en í hliðaránum. Það virðist sem að þrátt fyrir gruggugt yfirfallsvatn lifa seiði í Jöklu af og hafa náð að klára sinn lífsferil í sjó. Laxar veiddust allt upp fyrir Skjöldólfsstaði. Lax úr smáseiðasleppingum er því farinn að skila sér á það svæði og væntanlega hefur orðið hrygning þar haustið 2013. Telja verður að þessar niðurstöður séu góð tíðindi fyrir eigendur veiðiréttar en ástæða til að fylgjast með áfram.

File
Download file
Authors
Name Guðni Guðbergsson
Name Eydís Njarðardóttir
Name Veiðimálastofnun
Taxonomy
Category Vatnalíf
Year 2014
Publisher Landsvirkjun
Keywords Kárahnjúkar, Fljótsdalsstöð, Lagarfljót, Jökla, Jökulsá á Dal, vatnalíf, fiskur, vöktun, bleikja, lax, urriði