Fara í efni

LV-2021/046 - Vöktun á áfoki og viðhaldi fokgirðinga við Strönd Hálslóns.

Nánari upplýsingar
Titill LV-2021/046 - Vöktun á áfoki og viðhaldi fokgirðinga við Strönd Hálslóns.
Undirtitill Áfangaskýrsla 2021
Lýsing

Frá árinu 2014 hefur Landgræðslan séð um vöktun og mælingar á áfoki í norðurhluta Kringilsárrana og við austurströnd Hálslóns að beiðni Landsvirkjunar. Landgræðslan hefur einnig haft umsjón með fokgirðingum við Hálslón allt frá því að fyrstu girðingarnar voru settar upp á árunum 2008 og 2009. Farið var í vettvangsferð á svæðið dagana 28.-30. júní þar sem útbreiðsla áfoks var mæld og mælireitir ljósmyndaðir. Jafnframt voru fokgirðingar yfirfarnar og lagfærðar eftir þörfum.

Í Kringilsárrana hefur útbreiðsla áfokssvæða minnkað úr 3,7 ha sumarið 2020 í 2,1 ha 2021 og einungis nyrst í Kringilsárrana voru lítilsháttar ummerki um nýtt áfok. Við austurströnd Hálslóns hafa áfokssvæðin einnig minnkað umtalsvert eða úr 12,2 ha 2020 í 4,7 ha sumarið 2021. Bæði á Lindabungu og Kofaöldu var þó talsvert af nýju efni
enda allhvasst og nokkuð áfok þegar úttektin var gerð.

Skráarviðhengi
Sækja skjal
Höfundar
Nafn Elín Fjóla Þórarinsdóttir
Nafn Ágústa Helgadóttir
Flokkun
Flokkur Áfok við strönd Hálslóns
Útgáfuár 2021
Leitarorð Hálslón, Kringilsárrani, áfok, mælingar á áfoki, vöktun, fokgirðinga