Skip to content

LV-2014/094 - Úttekt og mælingar á áfoki við strönd Hálslóns.

More info
Title LV-2014/094 - Úttekt og mælingar á áfoki við strönd Hálslóns.
Subtitle Áfangaskýrsla 2014
Description

Að beiðni Landsvirkjunar var gerð úttekt á áfoki frá lónstæði Hálslóns og hannað úttektarkerfi fyrir vöktun á áfoki til framtíðar. Vöktunarkerfið byggir á ljósmyndum sem teknar eru með reglulegu millibili meðfram lónsborði Hálslóns. Þá er metin útbreiðsla áfokssvæða sem hafa þegar myndast og þykkt áfoks mæld. Úttekt fór fram við austurströnd Hálslóns og í Kringilsárrana í júlí 2014. Niðurstöður úttektarinnar sýna að tvö áfokssvæði eru við austurströnd Hálslóns, við Lindarbungu og Kofaöldu og eru þau bæði yfir 1 ha að stærð. Í Kringilsárrana eru þrjú megin áfokssvæði, norðan Syðri Hrauka er um 1,8 ha samfellt svæði, í vík rétt sunnan Hrauka er að myndast áfoksgeiri, auk þess sem áfok er á nokkrum svæðum við fokgirðingarnar nyrst í Rananum. Mesta áfokið er í víkinni sunnan Hrauka, á rúmlega 0,2 ha svæði með að jafnaði rúmlega 4 cm þykku áfoki.

File
Download file
Authors
Name Elín Fjóla Þórarinsdóttir
Name Guðrún Schmidt
Name Jóhann Þórsson
Name Kristín Svavarsdóttir
Taxonomy
Category Áfok við strönd Hálslóns
Year 2014
Publisher Landsvirkjun
Keywords Hálslón, Kringilsárrani, áfok, mælingar á áfoki, vöktun með ljósmyndum, áfoksgeirar