Skip to content

LV-2014/030 - Heiðagæsaathuganir á Snæfellsöræfum 2013

More info
Title LV-2014/030 - Heiðagæsaathuganir á Snæfellsöræfum 2013
Subtitle LV-2014/030
Description Heiðagæsavarp á Vesturöræfum var þéttleikamælt með sniðtalningum í sumarbyrjun árið 2013. Áframhaldandi vöxtur virðist vera í varpinu sem er í samræmi við mælingar síðustu ára að undanskildu árinu 2011 þegar það misfórst að verulegu leyti sökum tíðarfars. Varpið var um hálfum mánuði síðar á ferðinni vegna snjóalaga á rannsóknasvæðinu miðað við vörp lægra staðsett í landinu. Varpárangur reyndist í ágætu lagi þar sem meðaleggjafjöldi var 3,3 egg í hreiðri og þéttleiki hreiðra reyndist vera 37 á hverjum km². Að jafnaði voru 2,3 ungar með hverju pari í júlí þegar flogið var yfir hluta Snæfellsöræfa í talningum á ófleygum heiðagæsum. Ófleygum heiðagæsum fækkaði annað árið í röð á Eyjabakkasvæðinu og innan við 500 heiðagæsir voru taldar við Hálslón í júlí 2013. Fjölskyldufuglar komu lítið fram í rannsóknarfluginu sem getur hafa stafað af síðbúnu varpi.
File
Download file
Authors
Name Halldór Walter Stefánsson
Name Skarphéðinn G. Þórisson
Taxonomy
Category Fuglar
Year 2014
Publisher Landsvirkjun
Keywords Heiðagæs, Snæfellsöræfi.