Skip to content

LV-2016/074 - Vatna- og sundfuglar á Jökulsá á Dal og endur á Lagarfljóti og á vötnum á Fljótsdalsheiði árið 2015

More info
Title LV-2016/074 - Vatna- og sundfuglar á Jökulsá á Dal og endur á Lagarfljóti og á vötnum á Fljótsdalsheiði árið 2015
Subtitle LV-2016/074
Description Talningar á öndum fyrir Landsvirkjun á Lagarfljóti og vötnum á Fljótsdalsheiði og á vatna- og sundfuglum á Jökulsá á Dal eru liðir í vöktun Náttúrustofu Austurlands á völdum fuglategundum sem tengjast vatnasviði Kárahnjúkavirkjunar. Árið 2015 dreifðust hávellur misjafnlega um Lagarfljót og voru flestar næst Héraðsflóa og við Egilsstaði en fækkaði verulega miðað við árið 2014. Hávellur voru algengar á vötnum í Fljótsdalsheiði. Skúfönd fjölgaði á Lagarfljóti en stokkönd fækkaði. Fjöldi í stærstu hópum þessarra anda á Lagarfljóti fækkaði milli ára. Heldur fleiri skúmar voru í og við farveg Jökulsár á Dal sumarið 2015 miðað við árið á undan. Máfar, kjói og kría voru algengustu vatna- og sundfuglarnir á Jöklu sumarið 2015, þar næst endur og álíka mikið sást af álftum og lóm.
File
Download file
Authors
Name Halldór Walter Stefánsson
Name Náttúrustofa Austurlands
Taxonomy
Category Fuglar
Year 2016
Publisher Landsvirkjun
Keywords Vatnafuglar, endur, Jökulsá á Dal, Lagarfljót, Fljótsdalsheiði.