Skip to content

LV-2014/098 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði.

More info
Title LV-2014/098 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði.
Subtitle Framkvæmdir og árangur 2014
Description

Frá árinu 2009 hefur áburði verið dreift á gróðursnauð svæði austan Hálslóns svo koma megi upp gróðri sem gæti staðist og bundið hugsanlegt áfok úr lónstæði. Heildarstærð uppgræðslusvæðis þar er nú um 700 ha. Árangur hefur verið mjög góður flest árin. Í sumar komu svæðin seint undan snjó en jafnari raki og hagstætt tíðarfar síðsumars bættu um svo árangur er vel viðunandi. Árið 2012 hófst uppgræðsla með áburðargjöf og sáningu á Hraunum, röskuðum, fyrrum framkvæmdasvæðum. Svæðin eru almennt rýr, hátt yfir sjó og erfið í uppgræðslu. Sama gildir um önnur framkvæmdasvæði á Fljótsdalsheiði en hafist var handa við uppgræðslu í nágrenni við aðgöng 2 sem einnig er fyrrum framkvæmdasvæði. Alls eru uppgræðslusvæðin við Hálslón, á Hraunum og við aðgöng 2 nú um 850 ha.

File
Download file
Authors
Name Rúnar Ingi Hjartarson
Name Landgræðsla ríkisins
Taxonomy
Category Gróðurstyrking
Year 2014
Publisher Landsvirkjun
Keywords Gróðurstyrking, dreifing, áburður, uppgræðsla, Hálslón, áfok, á Hraunum, sáning, Fljótsdalsheiði 888