Skip to content

LV-2015/106 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði

More info
Title LV-2015/106 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði
Subtitle Framkvæmdir og árangur 2015
Description

Frá árinu 2009 hefur áburði verið dreift á gróðursnauð svæði austan Hálslóns svo koma megi upp gróðri sem gæti staðist og bundið hugsanlegt áfok úr lónstæði. Heildarstærð uppgræðslusvæðis þar er nú um 700 ha. Árangur hefur verið mjög góður flest árin. Í sumar komu svæðin seint undan snjó og framan af sumri var kuldatíð. Hagstætt tíðarfar síðla sumars og um haustið, með úrkomu, bættu nokkuð úr, svo árangur er þokkalegur. Árið 2012 hófst uppgræðsla með áburðargjöf og sáningu á Hraunum, röskuðum, fyrrum
framkvæmdasvæðum. Svæin eru almennt rýr, hátt yfir sjó og afar erfið í uppgræðslu. Sama gildir um önnur framkvæmdasvæði á Fljótsdalsheiði en hafist var handa við uppgræðslu í nágrenni við aðgöng 2 sem einnig er fyrrum framkvæmdasvæði virkjunar. Ekki var dreift áburði á svæði við aðgöng 2 í ár. Alls eru uppgræðslusvæðin við Hálslón, á Hraunum og við aðgöng 2 nú um 850 ha.

File
Download file
Authors
Name Rúnar Ingi Hjartarson
Name Landgræðsla ríkisins
Taxonomy
Category Gróðurstyrking
Year 2015
Publisher Landsvirkjun
Keywords Gróðurstyrking, dreifing, áburður, uppgræðsla, Hálslón, áfok, á Hraunum, sáning, Fljótsdalsheiði. 443