LV-2010/043 - Kárahnjúkavirkjun.
| More info |
| Title |
LV-2010/043 - Kárahnjúkavirkjun. |
| Subtitle |
Fallryksmælingar við Hálslón, á Brúaröræfum og í byggð á Fljótsdalshéraði sumarið 2009 |
| Description |
Mælingar á fallryki hafa staðið yfir á svæðinu í kringum Hálslón, á Brúaröræfum og í byggð á Fljótsdalshéraði á hverju sumri frá árinu 2005. Tilgangurinn er að meta áhrif Hálslóns á rykmistur sem berst frá hálendinu norðan Vatnajökuls til norðausturs yfir Jökuldal og Fljótsdalshérað. Fallryksmælar voru gerðir virkir um mánaðarmót maí/júní í byggð og mánaðarmót júní/júlí á hálendinu. Mælt var á öllum stöðum til loka september. Fallryk mældist í flestum tilvikum lítið en í september fór ryk yfir viðmiðunarmörk fyrir loftgæði í fallryksmæli í Arnardal. Upptök ryksins voru á eyrum Jökulsár á Fjöllum í suðvestan og vestan hvassvirði sem gekk yfir landið um miðjan september. Mest hætta á rykmengun frá bökkum Hálslóns er frá því að snjóa leysir á vorin og jarðvegur fer að þorna og þar til lónið fer að fyllast af vatni. Mikilvægt er því að koma fallryksmælum upp sem fyrst á vorin. Þessi skýrsla fjallar um fallryskmælingar sumarið 2009 og er fimmta skýrslan sem kemur út vegna fallryksmælinga. |
| File |
|
| Authors |
| Name |
Gerður Guðmundsdóttir |
| Name |
Náttúrustofa Austurlands |
| Taxonomy |
| Category |
Loftgæði |
| Year |
2010 |
| Publisher |
Landsvirkjun |
| Keywords |
Fallryk, mistur, Brúaröræfi, Fljótsdalshérað, Hálslón, Kárahnjúkavirkjun. |