Skip to content

LV-2019/64 - Úttekt og mælingar á áfoki við strönd Hálslóns.

More info
Title LV-2019/64 - Úttekt og mælingar á áfoki við strönd Hálslóns.
Subtitle Áfangaskýrsla 2019
Description

Landgræðslan hefur séð um vöktun og mælingar á áfoki við austurströnd Hálslóns og í norðurhluta Kringilsárrana frá 2014 að beiðni Landsvirkjunar. Eftirlitsferð var farin í 1.-3. júlí 2019 þar sem mælireitir voru ljósmyndaðir, þykkt og útbreiðsla áfoks mæld og mælibúnaður sjálfvirkra mælitækja yfirfarinn. Talsvert áfok mældist við austurströnd Hálslóns og náði áfokssvæðið yfir ríflega helmingi stærra svæði en áður. Við Lindabungu stækkaði það úr 5,8 ha í 14,6 ha og á Kofaöldu fór útbreiðslan úr 8,4 ha í 16,7 ha. Í Kringilsárrana sýndu niðurstöður frá sjálfvirku mælistöðvunum fram á lítið sem ekkert áfok og mælingar á útbreiðslu áfokssvæðanna sýndu einnig að áfok var heldur minna en síðustu ár nema nyrst þar sem áfokssvæðin hafa stækkað umtalsvert, úr 0,14 ha 2018 í 1,8 ha 2019. Vegna aukins áfoks var tveimur nýjum mælireitum bætt við nyrst í Kringilsárrana en einn mælireitur hafði horfið þar vegna landbrots.

File
Download file
Authors
Name Ágústa Helgadóttir
Name Elín Fjóla Þórarinsdóttir
Name Guðrún Schmidt
Name Þorsteinn Kristinsson
Taxonomy
Category Áfok við strönd Hálslóns
Year 2019
Publisher Landsvirkjun
Keywords Hálslón, Kringilsárrani, áfok, mælingar á áfoki, vöktun með ljósmyndum, áfoksgeirar, sjálfvirkar mælistöðvar með Sensit kornateljurum, landbrot, fokgirðingar.