LV-2016/058 - Kortlagning burðarsvæða hreindýra á áhrifasvæðum Kárahnjúkavirkjunar vorið 2014
| Nánari upplýsingar | |
|---|---|
| Titill | LV-2016/058 - Kortlagning burðarsvæða hreindýra á áhrifasvæðum Kárahnjúkavirkjunar vorið 2014 |
| Lýsing | Vorið 2014 voru burðarsvæði Snæfellshjarðar skoðuð í tíunda sinn frá því að verkefnið hófst 2005. Markmiðið var að kanna hvort og þá hvernig virkjunarframkvæmdir höfðu áhrif á burð hreindýra og val þeirra á burðarsvæðum. Skoðuð voru; Kringilsárrani, Sauðárrani, Brúaröræfi, Jökuldalsheiði, Vesturöræfi, Innri hluti Fljótsdalsheiðar, Undir Fellum, Múli, Suðurfell, og Austurheiðar. Nú fundust 141 kýr á veiðisvæði 1 (84% með kálfi) og 212 kýr á veiðisvæði 2 (58% með kálfi) dagana 20. og 22. maí 2014. Alls 353 kýr. Mikill snjór var á talningarsvæðum. Einungis var talið úr flugvél að þessu sinni. Kýr Fljótsdalshjarðar héldu mest til í dalbotnum og heiðarbrúnum en kýr Norðurheiðahjarðar voru dreifðar um Brúaröræfi og Jökuldalsheiði. |
| Skráarviðhengi | |
| Höfundar | |
|---|---|
| Nafn | Elín Guðmundsdóttir |
| Nafn | Rán Þórarinsdóttir |
| Flokkun | |
|---|---|
| Flokkur | Hreindýr |
| Útgáfuár | 2016 |
| Útgefandi | Landsvirkjun |
| Leitarorð | Hreindýr,hreinkýr, burður , miðburður, dreifing dýra, kálfahlutfall, burðarsvæði, Snæfellshjörð |