Fara í efni

LV-2012/038 - Vöktun skúms á Úthéraði.

Nánari upplýsingar
Titill LV-2012/038 - Vöktun skúms á Úthéraði.
Undirtitill Úttekt á varpi við Jökulsá á Dal 2011
Lýsing Náttúrustofa Austurlands kannaði ábúð skúma í og meðfram farvegi Jökulsár á Dal árið 2011. Skúmavarpið var síðast metið í heild á Úthéraði árið 2009. Farvegur Jöklu er hluti áhrifasvæðis Kárahnjúkavirkjunar og talið var að svæðisbundin athugun þar gæti gefið mynd af áhrifum virkjunarinnar á skúminn. Á Úthéraði hefur aðalvarpsvæði skúma verið í og við farveg Jökulsár á Dal og þar hefur þeim fækkað. Aðstæður hafa breyst og aðgengi manna og dýra batnað. Eyrarnar hafa verið græddar upp að hluta sem kann að koma tegundinni og e.t.v. fleiri fuglum til góða í framtíðinni. Ástæða er til að kanna allt skúmsvarp á Úthéraði sem fyrst svo upplýsingar fáist um stöðuna utan áhrifasvæðis Kárahnjúkavirkjunar.
Skráarviðhengi
Sækja skjal
Höfundar
Nafn Halldór Walter Stefánsson
Nafn Náttúrustofa Austurlands
Flokkun
Flokkur Fuglar
Útgáfuár 2012
Útgefandi Náttúrustofa Austurlands
Leitarorð Skúmur, Úthérað, vöktun, úttekt.