LV-2015/068 - Heiðagæsir á vatnasviði Kárahnjúkavirkjunar árið 2014
| Nánari upplýsingar | |
|---|---|
| Titill | LV-2015/068 - Heiðagæsir á vatnasviði Kárahnjúkavirkjunar árið 2014 |
| Undirtitill | LV-2015/068 |
| Lýsing | Að venju kannaði Náttúrustofa Austurlands heiðagæsavarp á vatnasviði Kárahnjúkavirkjunar fyrir Landsvirkjun árið 2014 og ófleygar gæsir voru taldar á hluta Snæfellsöræfa. Sökum snjóþyngsla dróst varp saman á Vesturöræfum og í afdölum en jókst verulega á Jökuldal. Rekja má hluta aukningarinnar til tilfærslu vegna snjóalaga samkvæmt álestrum litmerktra gæsa af svæðinu. Að meðaltali voru 3,4 egg í hreiðri og 3,0 ungar með hverju pari. Ófleygum heiðagæsum á Eyjabakkasvæðinu fjölgaði en fækkaði á Hálslóni. Hlutfall unga af töldum gæsum í júlí var lágt eða 5,6%. Merkingar á heiðagæsum á Vesturöræfum í júlí 2013 skiluðu mikilvægum upplýsingum um ferðir gæsanna, hvar þær verptu og felldu fjaðrir. Þessar merkingar koma til með að nýtast í vöktun sem þessari. |
| Skráarviðhengi | |
| Höfundar | |
|---|---|
| Nafn | Halldór Walter Stefánsson |
| Nafn | Skarphéðinn G. Þórisson |
| Flokkun | |
|---|---|
| Flokkur | Fuglar |
| Útgáfuár | 2015 |
| Útgefandi | Landsvirkjun |
| Leitarorð | Heiðagæs, vatnasvið, Kárahnjúkavirkjun |