LV-2016/059 - Heiðagæsir í varpi og felli á áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar árið 2015
| Nánari upplýsingar | |
|---|---|
| Titill | LV-2016/059 - Heiðagæsir í varpi og felli á áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar árið 2015 |
| Undirtitill | LV-2016/059 |
| Lýsing | Náttúrustofa Austurlands gerði úttekt á heiðagæsavarp á ytri hluta Jökuldals og í Hnefilsdal og Húsárdal fyrir Landsvirkjun árið 2015 og taldi ófleygar gæsir á hluta Snæfellsöræfa. Varpið jókst verulega á Jökuldal og lítillega í Hnefilsdal frá síðustu mælingum en fækkaði í Húsárdal. Mögulega má rekja hluta aukningarinnar í varpi til tilfærslu vegna snjóalaga en í hálendinu voraði seint að þessu sinni. Að meðaltali voru 3,3 egg í hreiðri og 3,2 ungar með hverju pari. Víðast hvar fækkaði ófleygum heiðagæsum á þeim hluta Snæfellsöræfa sem árlega er kannaður. Hlutfall unga af töldum gæsum í júlí var lágt eða 8% og jókst lítillega frá árinu áður þegar það var um 6%. Samkvæmt skoðun á hlutfalli ársgamalla heiðagæsa í felli á Eyjabakkasvæðinu þá reyndust þeir vera 26% af heildinni sem er heldur minna en í mælingu frá árinu 2011 |
| Skráarviðhengi | |
| Höfundar | |
|---|---|
| Nafn | Halldór Walter Stefánsson |
| Nafn | Skarphéðinn G. Þórisson |
| Flokkun | |
|---|---|
| Flokkur | Fuglar |
| Útgáfuár | 2016 |
| Útgefandi | Landsvirkjun |
| Leitarorð | Heiðagæs, varp, felli, Kárahnjúkavirkjun |