Fara í efni

LV-2007/036 Kárahnjúkavirkjun - Rannsóknir á gróðri í Kringilsárrana

Nánari upplýsingar
Titill LV-2007/036 Kárahnjúkavirkjun - Rannsóknir á gróðri í Kringilsárrana
Undirtitill Lýsing gróðurs og uppsetning vöktunarreita
Lýsing

Markmið athuganna eru tvenns konar.  Meginmarkmið verkefnisins er að leggja grunn að vöktunarrannsóknum sem miða að Því að fylgjast með hugsanlegum breytingum á gróðri í Kringilsárrana á næstu árum, einkum með hliðsjón af tilkomu Hálslóns.  Reiknað er með að tengja saman vöktun með gervitunglamyndun og vöktun á föstum reitum á svæðinu.

Annað markmið var að kanna hvort líklegt væri að miklar breytingar á gróðri væru að eiga sér stað í Kringilsárrana.  Orðrómur hafði verið um að gróður í Kringilsárrana hafi rýrnað á allra síðustu árum.  Ekki eru til nákvæmar mælingar á ástandi gróðurs á svæðinu á árum áður þannig að mat á ástandi gróðurs byggist fyrst og fremst á ástandinu eins og það var sumarið 2006, en einnig er það borið saman við nýleg gögn sem eru gróðurkort frá 2000.

Skráarviðhengi
Sækja skjal
Höfundar
Nafn Guðrún Áslaug Jónsdóttir
Nafn Kristín Ágústsdóttir
Nafn Náttúrustofa Austurlands
Flokkun
Flokkur Gróður
Útgáfuár 2007
Útgefandi Landsvirkjun
Leitarorð Kringilsárrani, gróður, vöktun, fjarkönnun