Fara í efni

LV-2014/025 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði.

Nánari upplýsingar
Titill LV-2014/025 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði.
Undirtitill Framkvæmdir og árangur 2013. Áætlun 2014.
Lýsing

Frá árinu 2009 hefur áburði verið dreift á gróðursnauð svæði austan
Hálslóns svo koma megi upp gróðri sem gæti staðist og bundið hugsanlegt áfok úr lónstæði.
Heildarstærð uppgræðslusvæðis þar er nú um 680 ha. Árangur hefur verið mjög góður flest
árin en hvað lakastur síðastliðið sumar. Bæði voraði seint á svæðinu og þurrkar seinni part
sumars voru óhagstæðir nýgræðingi. Árið 2012 hófst uppgræðsla með áburðargjöf og sáningu
á Hraunum, röskuðum, fyrrum framkvæmdasvæðum. Sú vinna hélt áfram 2013. Svæðin eru
almennt rýr og erfið í uppgræðslu. Sama gildir um önnur framkvæmdasvæði á Fljótsdalsheiði
en hafist var handa við uppgræðslu í nágrenni við aðgöng 2 sem einnig er fyrrum
framkvæmdasvæði.

Skráarviðhengi
Sækja skjal
Höfundar
Nafn Rúnar Ingi Hjartarson
Nafn Landgræðsla ríkisins
Flokkun
Flokkur Gróðurstyrking
Útgáfuár 2014
Útgefandi Landsvirkjun
Leitarorð Gróðurstyrking, dreifing, áburður, uppgræðsla, Hálslón, áfok, á Hraunum, sáning, Fljótsdalsheiði