Fara í efni

LV-2015/106 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði

Nánari upplýsingar
Titill LV-2015/106 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði
Undirtitill Framkvæmdir og árangur 2015
Lýsing

Frá árinu 2009 hefur áburði verið dreift á gróðursnauð svæði austan Hálslóns svo koma megi upp gróðri sem gæti staðist og bundið hugsanlegt áfok úr lónstæði. Heildarstærð uppgræðslusvæðis þar er nú um 700 ha. Árangur hefur verið mjög góður flest árin. Í sumar komu svæðin seint undan snjó og framan af sumri var kuldatíð. Hagstætt tíðarfar síðla sumars og um haustið, með úrkomu, bættu nokkuð úr, svo árangur er þokkalegur. Árið 2012 hófst uppgræðsla með áburðargjöf og sáningu á Hraunum, röskuðum, fyrrum
framkvæmdasvæðum. Svæin eru almennt rýr, hátt yfir sjó og afar erfið í uppgræðslu. Sama gildir um önnur framkvæmdasvæði á Fljótsdalsheiði en hafist var handa við uppgræðslu í nágrenni við aðgöng 2 sem einnig er fyrrum framkvæmdasvæði virkjunar. Ekki var dreift áburði á svæði við aðgöng 2 í ár. Alls eru uppgræðslusvæðin við Hálslón, á Hraunum og við aðgöng 2 nú um 850 ha.

Skráarviðhengi
Sækja skjal
Höfundar
Nafn Rúnar Ingi Hjartarson
Nafn Landgræðsla ríkisins
Flokkun
Flokkur Gróðurstyrking
Útgáfuár 2015
Útgefandi Landsvirkjun
Leitarorð Gróðurstyrking, dreifing, áburður, uppgræðsla, Hálslón, áfok, á Hraunum, sáning, Fljótsdalsheiði. 443