Fara í efni

LV-2017/102 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði

Nánari upplýsingar
Titill LV-2017/102 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði
Undirtitill Framkvæmdir og framvinda 2017
Lýsing

Frá árinu 2009 hefur áburði verið dreift á gróðursnauð svæði austan Hálslóns svo koma megi upp gróðri sem gæti staðist og bundið hugsanlegt áfok úr lónstæði. Heildarstærð uppgræðslusvæðis þar er nú um 780 ha. Árangur hefur verið mjög góður flest árin. Vel hefur árað undanfarin tvö ár. Svæðin komu vel undan vetri og hægt var að hefja dreifingu seinnipart júní í ár. Áburður síðasta árs var einnig enn að verka framan af sumri. Árið 2012 hófst uppgræðsla með áburðargjöf og sáningu á Hraunum, röskuðum, fyrrum framkvæmdasvæðum. Svæðin eru almennt rýr, hátt yfir sjó og erfið í uppgræðslu. Sama gildir um önnur framkvæmdasvæði á Fljótsdalsheiði en hafist var að nýju við uppgræðslu á haugssvæði utarlega í Desjarárdal. Alls eru uppgræðslusvæðin við Hálslón, á Hraunum og við aðgöng 2 nú rúmlega 900 ha.

Skráarviðhengi
Sækja skjal
Höfundar
Nafn Rúnar Ingi Hjartarson
Nafn Landgræðsla ríkisins
Flokkun
Flokkur Gróðurstyrking
Útgáfuár 2017
Útgefandi Landsvirkjun
Leitarorð Gróðurstyrking, framvinda, dreifing, áburður, uppgræðsla, Hálslón, áfok, á Hraunum, sáning, Fljótsdalsheiði. 443