Fara í efni

LV-2022/045 - Gróðurstyrking í Húsey og við Hálslón

Nánari upplýsingar
Titill LV-2022/045 - Gróðurstyrking í Húsey og við Hálslón
Undirtitill Framkvæmdir 2022
Lýsing

Sumarið 2022 var 78 tonnum af áburði dreift á um 500 hektara í nágrenni Hálslóns og í landi Húseyjar. Áburðurinn skiptist þannig að 75 tonnum var dreift við Hálslón og 3 tonnum dreift í Húsey. Markmið áburðardreifingarinnar er að draga úr umhverfisáhrifum Hálslóns og Kárahnjúkavirkjunar. Með áburðardreifingunni er gróðurþekjan styrkt, bæði heildarþekja og gróðurhæð. Þannig getur gróðurinn betur tekið við áfoki og þol gagnvart jarðvegsrofi eykst. Lagt er til að áfram verði unnið með álíka umfangi sumarið 2023, með fyrirvara um niðurstöðu kortlagningar sem framkvæmd var 2022, en niðurstöðu úr henni er að vænta eftir áramót.

Skráarviðhengi
Sækja skjal
Höfundar
Nafn Sigríður Þorvaldsdóttir
Nafn Hrafnkatla Eiríksdóttir
Nafn Elín Fjóla Þóransdóttir
Nafn Jóhann Thorarensen
Flokkun
Flokkur Gróðurstyrking
Útgáfuár 2022
Útgefandi Landsvirkjun
Leitarorð Gróðurstyrking, framvinda, dreifing áburðar, uppgræðsla, Húsey, Hálslón, 443