Fara í efni

LV-2014/042 - Kárahnjúkavirkjun

Nánari upplýsingar
Titill LV-2014/042 - Kárahnjúkavirkjun
Undirtitill Fallryksmælingar við Hálslón og í byggð á Fljótsdalshéraði sumarið 2013
Lýsing

Mælingar á fallryki hafa staðið yfir á svæðinu í kringum Hálslón, á Brúaröræfum og í byggð á Fljótsdalshéraði á hverju sumri frá árinu 2005, þar af í þrjú ár áður en Hálslón var fyrst fyllt af vatni. Mælt hefur verið á 18 stöðum undanfarin ár en sumarið 2013 var ákveðið að fækka mælistöðum niður í 5. Fallryk mældist alltaf undir viðmiðunarmörkum um loftgæði fyrir fallryk. Á tímabilinu júní/júlí, þegar mest hætta er á áfoki frá bökkum Hálslóns, mældist fallryk talsvert hærra sumarið 2013 en meðaltal áranna fyrir og eftir að Hálslón myndaðist. Óvenju þurrt sumar austanlands getur skýrt það að einhverju leyti. Vert er að benda á að meðaltal fallryks á tímabilinu júní /júlí árin eftir að Hálslón myndaðist er hærra á öllum 5 mælistöðum en meðaltalið fyrir myndun Hálslóns.

Skráarviðhengi
Sækja skjal
Höfundar
Nafn Gerður Guðmundsdóttir
Nafn Náttúrustofa Austurlands
Flokkun
Flokkur Loftgæði
Útgáfuár 2014
Útgefandi Landsvirkjun
Leitarorð Fallryk, mistur, Fljótsdalshérað, Hálslón, Kárahnjúkavirkjun.