Fara í efni

LV-2015/061 - Útbreiðsla og ástand seiða í Jökulsá á Dal og hliðarám hennar 2014

Nánari upplýsingar
Titill LV-2015/061 - Útbreiðsla og ástand seiða í Jökulsá á Dal og hliðarám hennar 2014
Undirtitill VMST/14053
Lýsing

Gerð var rannsókn á þéttleika og ástandi seiða í Jöklu og hliðarám hennar. Um er að ræða framhald rannsókna sem hófust 2011 til að fylgjast með landnámi laxfiska í Jöklu í kjölfar breytinga vegna tilkomu Kárahnjúkavirkjunar og veitingu vatns til Lagarfljóts. Við það breyttust skilyrði í Jöklu verulega en hún er nú bergvatnsá utan þess tíma sem jökulvatn fellur á yfirfalli úr Hálslóni síðsumars. Náttúruleg laxa- og bleikjuseiði fundust í Jöklu og þrif seiða virðast almennt góð og vöxtur ekki minni en í hliðaránum. Það virðist sem að þrátt fyrir gruggugt yfirfallsvatn lifa seiði í Jöklu af og hafa náð að klára sinn lífsferil í sjó. Laxar veiddust allt upp fyrir Skjöldólfsstaði. Lax úr smáseiðasleppingum er því farinn að skila sér á það svæði og náttúruleg hrygning átti sér stað haustið 2013. Telja verður að þessar niðurstöður séu góð tíðindi fyrir eigendur veiðiréttar en ástæða til að fylgjast með áfram.

Skráarviðhengi
Sækja skjal
Höfundar
Nafn Guðni Guðbergsson
Nafn Veiðimálastofnun
Flokkun
Flokkur Vatnalíf
Útgáfuár 2015
Útgefandi Landsvirkjun
Leitarorð Kárahnjúkar, Fljótsdalsstöð, Lagarfljót, Jökla, Jökulsá á Dal, vatnalíf, fiskur, vöktun, bleikja, lax, urriði