Framvinda
Mynd 1. Skuldir og skuldbindingar sveitarfélaga á Austurlandi á móti tekjum - A hluti 2002-2023.
Mynd 2. Skuldir og skuldbindingar Fjarðarbyggðara, Múlaþingsb, Vopnafjarðahrepps og Fljótsdalshrepps (í þúsundum króna) á uppreiknuðu verði samkvæmt meðal vísitölu neysluverðs ársins 2022 (545,1).
a: Fjarðabyggð í núverandi mynd varð til við sameiningar árin 2006 og 2018. Árið 2006 sameinuðust Fjarðabyggð, Mjófjarðarhreppur, Austurbyggð (sem varð til 2003 við sameiningu Búðahrepps og Stöðvarhrepps) og Fáskrúðsfjarðarhreppur. Árið 2018 sameinaðist svo Breiðdalshreppur og Fjarðabyggð. Mynd 2 sýnir skuldir og skuldbindingar í Fjarðabyggð og þeim sveitarfélögum sem hafa sameinast Fjarðabyggð á árunum 2002-2023.
b: Múlaþing í núverandi mynd varð til við sameiningu Seyðisfjarðar, Borgarfjarðar, Djúpivogs og Fljótsdalshéraðs árið 2020. Mynd 2 sýnir skuldir og skuldbindingar í Múlaþingi og þeim sveitarfélögum, sem sameinuðust í Múlaþing, á árunum 2002-2023.
Uppfært: 26. nóvember 2024
Heimild: Samband íslenskra sveitarfélaga sótt 26. nóvember 2024
Vöktunaráætlun og markmið
Hvað er mælt?
Skuldastaða sveitarfélaga á Austurlandi (áhrif framkvæmda: óbein).
Áætlun um vöktun
Sveitarfélög á Austurlandi munu útvega þessar upplýsingar árlega.
Markmið
Á ekki við.
Mögulegar viðbragðsaðgerðir
Einungis er um vöktun að ræða.
Breytingar á vísi
Á ársfundi verkefnisins 3. maí 2016 var eftirfarandi breyting samþykkt á þáverandi vísi. Á þeim tíma voru vísarnir 3.5.1-3.5.4 allir undir sama vísis númerinu (3.5) og voru þá með bókstaf (a-d) fyrir hvern vaktaðan lið.
Texti fyrir breytingu | Texti eftir breytingu |
---|---|
a. Breytingar á útsvarstekjum í völdum sveitarfélögum. |
a. Breytingar á útsvarstekjum í völdum sveitarfélögum |
Rökstuðningur:
Vísirinn var ræddur í hópavinnu á ársfundi 2015 og var niðurstaða hópsins að halda vísinum inni en bæta við framlegð og skuldastöðu sveitarfélaga.
Þessi vísir var upphaflega númer 15.1 . Þá hét hann Fjárhagsstaða sveitarfélaga og má finna umfjöllun um hann undir því númeri í áfangaskýrslum verkefnisins frá 2005 og 2006.
Tvisvar hefur númeri vísis verið breytt.
Ár | Nr. | Nafn vísis |
---|---|---|
2020 | 3.2.4 | Skuldastaða |
2007 | 3.5d | Fjárhagsstaða sveitarfélaga |
Grunnástand
Sveitarfélög | Tekjur (í þús. króna) | Útgjöld (í þús. króna) | Tekur/Útgjöld hlutfall |
---|---|---|---|
Austur-Hérað | 894.708 | 910.107 | 0,983 |
Norður-Hérað | 109.820 | 111.838 | 0,982 |
Fellahreppur | 168.986 | 181.159 | 0,933 |
Austurbyggð | 431.413 | 477.795 | 0,903 |
Fáskrúðsfjarðarhreppur | 20.269 | 19.638 | 1,032 |
Fjarðabyggð | 1.407.409 | 1.419.177 | 0,992 |
Fljótsdalshreppur | 38.530 | 39.158 | 0,984 |
Borgarfjarðarhreppur | 61.371 | 58.737 | 1,045 |
Breiðdalshreppur | 107.225 | 128.387 | 0,835 |
Djúpavogshreppur | 209.948 | 228.598 | 0,918 |
Mjóafjarðarhreppur | 10.807 | 11.560 | 0,935 |
Seyðisfjarðarkaupstaður | 404.161 | 424.244 | 0,953 |
Skeggjastaðahreppur | 41.933 | 50.079 | 1,037 |
Sveitarfélagið Hornafjörður | 958.469 | 1.031.925 | 0,929 |
Vopnafjarðarhreppur | 320.146 | 366.972 | 0,872 |
Heimild: Samband íslenskra sveitarfélaga. Árbók sveitarfélaga 2003.
Sveitarfélög | Tekjur (í þús. króna) | Útgjöld (í þús. króna) | Tekjur/Útgjöld hlutfall |
---|---|---|---|
Fljótsdalshérað | 1.173.514 | 1.203.104 | 0,975 |
Fjarðabyggð | 1.869.898 | 1.928.170 | 0,970 |
Fljótsdalshreppur | 38.530 | 39.158 | 0,984 |
Borgarfjarðarhreppur | 61.371 | 58.737 | 1,045 |
Breiðdalshreppur | 107.225 | 128.387 | 0,835 |
Djúpavogshreppur | 209.948 | 228.598 | 0,918 |
Seyðisfjarðarkaupstaður | 404.161 | 424.244 | 0,953 |
Vopnafjarðarhreppur | 320.146 | 366.972 | 0,872 |
Samtals | 4.184.793 | 4.377.370 | 0,956 |
Uppfært: 20. nóvember 2017
Heimild: Samband íslenskra sveitarfélaga.
Forsendur fyrir vali á vísi
Framkvæmdirnar á Austurlandi munu líklega skila sveitarfélögum auknum tekjum bæði vegna beinna skatttekna af fyrirtækjum sem tengjast framkvæmdum og vegna skatttekna af þeim störfum sem skapast óbeint vegna þeirra. Á móti kemur að kostnaður sveitarfélaga mun einnig aukast þar sem fjölgun íbúa krefst meiri þjónustu. Eftirfarandi eru dæmi um þá þjónustu sem sveitarfélög sinna:
- Félagsleg þjónusta
- Tækniþjónusta
- Menntun, menning, íþróttir og afþreying
- Gatnagerð, umhverfis- og skipulagsmál
- Rekstur hafna (ef við á)
-
Vatnsveitur og hitaveitur
Sjá skýrslu um vísa og grunnástand frá apríl 2005