Lokaskýrsla Sjálfbærniverkefnsins
Til baka í yfirlit
13.05.2026
Sjálfbærnivöktun Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar, sem stóð frá 2007, lauk í lok árs 2025.
Á meðan á byggingu virkjunarinnar og álversins stóð sáu margir þau tækifæri fyrir sem raungerðust síðar í atvinnulífi á Austurlandi á meðan aðrir lýstu áhyggjum af áhrifum framkvæmdanna.
Austurbrú hefur haldið utan um sjálfbærniverkefni frá árinu 2013 og tók saman lokaskýrslu þess. Skýrsluna má nálgast hér.
Hér eru nokkrar af helstu niðurstöðunum sem vert er að nefna.
Samfélagið
- Íbúum á Austurlandi hefur fjölgað umtalsvert frá 2004 eða um 17,3% og eru nú ríflega 11 þúsund.
- Atvinnuleysi í fjórðungnum er aðeins um 2%.
- Um 20% fólks á vinnumarkaði í nágrenni álversins starfa beint eða óbeint þar.
Efnahagur
- Frá því að virkjunin reis og álverið tók til starfa hafa launatekjur í fjórðungnum alltaf mælst yfir landsmeðaltali.
- Þótt Austfirðingar séu aðeins um 3% af íslensku þjóðinni verður nærri fjórðungur af útflutningsverðmætum Íslands til í fjórðungnum
Umhverfið
- Náttúrustofa Austurlands hefur vaktað hreindýrin á svæðinu. Árið 2010 færðu dýrin sig af Fljótsdalsheiði yfir á nærliggjandi svæði á fjörðunum og aftur inn á Vesturöræfi þar sem þeim fjölgaði frá 2009 til 2017 en fækkaði eftir það.
- Heiðagæsum hefur fjölgað verulega á svæðinu þótt varpland hafi farið undir lónið. Sameiginlegur heiðagæsastofn Íslands og Grænlands var talinn um 280 þúsund fuglar árið 2003 en 500 þúsund fuglar árið 2019
- Vatnið í Jöklu er miklu tærara en það var fyrir virkjun og þar hefur verið byggður upp laxastofn með seiðasleppingum í ána og hliðarár hennar.
-
Í LagarfljótI versnuðu lífsskilyrði í kjölfar breytts rennslis. Litlar upplýsingar eru reyndar til um silung í Lagarfljóti fyrir virkjun og því erfitt að segja til um stöðugleika stofnanna, en þeir virðast núna nokkuð stöðugir.