Fara í efni

LV-2018/081 - Úttekt og mælingar á áfoki við strönd Hálslóns.

Nánari upplýsingar
Titill LV-2018/081 - Úttekt og mælingar á áfoki við strönd Hálslóns.
Undirtitill Áfangaskýrsla 2018
Lýsing

Landgræðslan hefur séð um vöktun og mælingar á áfoki við austurströnd Hálslóns og í norðurhluta Kringilsárrana frá 2014 að beiðni Landsvirkjunar. Eftirlitsferð var farin í byrjun júlí 2018 þar sem mælireitir voru ljósmyndaðir, útbreiðsla áfoks mæld og mælibúnaður sjálfvirkra mælitækja yfirfarinn. Talsvert áfok mældist við austurströnd Hálslóns og náði það yfir stærrasvæði en áður, bæði við Lindabungu þar sem áfokssvæðið mældist um 5,8 ha og við Kofaöldu þar sem útbreiðslan var um 8,4 ha. Í Kringilsárrana var áfok almennt heldur minna en síðustu ár og niðurstöður frá sjálfvirku mælistöðvunum sýndu einnig fram á lítið sem ekkert áfok. Töluverðar breytingar hafa þó orðið vegna landbrots, bæði við áfoksgeirann sunnan Hrauka þar sem 15 mælireitir höfðu horfið frá 2017 og nyrst í Kringilsárrana þar sem tveir mælireitir voru horfnir og hluti af eldri áfokssvæðum. Þar eru þó einnig nokkur ný áfokssvæði við fokgirðingarnar þar sem fokuppspretturnar hafa færst nær með auknu landbroti.

Skráarviðhengi
Sækja skjal
Höfundar
Nafn Ágústa Helgadóttir
Nafn Elín Fjóla Þórarinsdóttir
Nafn Guðrún Schmidt
Nafn Þorsteinn Kristinsson
Flokkun
Flokkur Áfok við strönd Hálslóns
Útgáfuár 2018
Útgefandi Landsvirkjun
Leitarorð Hálslón, Kringilsárrani, áfok, mælingar á áfoki, vöktun með ljósmyndum, áfoksgeirar, sjálfvirkar mælistöðvar með Sensit kornateljurum, landbrot, fokgirðingar