Fara í efni

LV-2016/117 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði

Nánari upplýsingar
Titill LV-2016/117 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði
Undirtitill Framkvæmdir og framvinda 2016
Lýsing

Frá árinu 2009 hefur áburði verið dreift á gróðursnauð svæði austan Hálslóns svo koma megi upp gróðri sem gæti staðist og bundið hugsanlegt áfok úr lónstæði. Heildarstærð uppgræðslusvæðis þar er nú um 750 ha. Árangur hefur verið mjög góður flest árin. Talsverð snjóalög voru á svæðunum í vetur en það voraði vel er leið á. Svæðin komu því vel undan vetri þó oft hafi verið hægt að hefja aðgerðir fyrr á vorin. Áburður síðasta árs var einnig enn að verka framan af sumri. Hagstætt sumar og haust með góðum raka höfðu jákvæð áhrif svo útlit svæða er með besta móti þetta árið. Árið 2012 hófst uppgræðsla með áburðargjöf og sáningu á Hraunum, röskuðum, fyrrum framkvæmdasvæðum. Svæðin eru almennt rýr, hátt yfir sjó og erfið í uppgræðslu. Sama gildir um önnur framkvæmdasvæði á Fljótsdalsheiði en hafist var handa við uppgræðslu í nágrenni við aðgöng 2 sem einnig er fyrrum framkvæmdasvæði. Ekki var dreift áburði á aðgöng 2 í ár. Alls eru uppgræðslusvæðin við Hálslón, á Hraunum og við aðgöng 2 nú um 900 ha.

Skráarviðhengi
Sækja skjal
Höfundar
Nafn Rúnar Ingi Hjartarson
Nafn Landgræðsla ríkisins
Flokkun
Flokkur Gróðurstyrking
Útgáfuár 2016
Útgefandi Landsvirkjun
Leitarorð Gróðurstyrking, framvinda, dreifing, áburður, uppgræðsla, Húsey, sáning, melgresi, 443