Fara í efni

LV-2018/086 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði

Nánari upplýsingar
Titill LV-2018/086 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði
Undirtitill Framkvæmdir og framvinda 2018
Lýsing

Frá árinu 2009 hefur áburði verið dreift á gróðursnauð svæði austan Hálslóns svokoma megi upp gróðri sem gæti staðist og bundið hugsanlegt áfok úr lónstæði. Heildarstærð uppgræðslusvæðis þar er nú um 780 ha. Árangur hefur verið mjög góður flest árin. Vel hefurárað undanfarin þrjú ár. Svæðin komu ágætleg undan vetri og hægt var að hefja dreifingu ummánaðarmótin júní/júlí í ár. Árið 2012 hófst uppgræðsla með áburðargjöf og sáningu á Hraunum, röskuðum, fyrrum framkvæmdasvæðum. Svæðin eru almennt rýr, hátt yfir sjó og erfið í uppgræðslu. Þessi svæði eru nú flest komin vel á veg enda tíðarfar undanfarin ár verið hagstætt. Sama gildir um önnur framkvæmdasvæði á Fljótsdalsheiði en fyrir tveim árum hófst uppgræðsla að á haugssvæði utarlega í Tungu á milli Glúmsstaðadals og Þuríðarstaðadals.Alls eru uppgræðslusvæðin við Hálslón, á Hraunum og við aðgöng 2 nú rúmlega 900 ha.

Skráarviðhengi
Sækja skjal
Höfundar
Nafn Rúnar Ingi Hjartarson
Nafn Landgræðsla ríkisins
Flokkun
Flokkur Gróðurstyrking
Útgáfuár 2018
Útgefandi Landsvirkjun
Leitarorð Gróðurstyrking, framvinda, dreifing, áburður, uppgræðsla, Hálslón, áfok, á Hraunum, sáning, Fljótsdalsheiði.